Fréttir | 25. júní 2020 - kl. 13:19
Kjörfundir í Skagabyggð og á Skagaströnd

Kjörfundur í Skagabyggð vegna forsetakosninganna á laugardaginn verður í Skagabúð og hefst hann klukkan 12 en stefnt er að því að honum ljúki klukkan 17. Kjörfundurinn á Skagaströnd verður í félagsheimilinu Fellsborg frá klukkan 10-20. Skylt er að framvísa skilríkjum sé þess óskað.

Kjörskrá Skagabyggðar liggur frammi hjá oddvita að Ytra-Hóli 1 til kjördags.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga