Tilkynningar | 25. júní 2020 - kl. 19:25
Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 30. júní næstkomandi í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og hefst klukkan 14. Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn sjóðsins eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Setning ársfundar
- Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
- Fjárfestingarstefna sjóðsins
- Hluthafastefna sjóðsins
- Breytingar á samþykktum
- Skipan stjórnar
- Starfskjarastefna
- Kosning löggilts endurskoðanda
- Laun stjórnar
- Nefnd um laun stjórnar
- Önnur mál
Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans.
Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögurnar hafa verið sendar aðildarfélögum ásamt greinagerð.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í vefútsendingu á heimasíðu sjóðsins.
Önnur gögn má finna hér:
Ársreikningur Stapa 2019
Ársskýrsla Stapa 2019