Fréttir | 28. júní 2020 - kl. 09:05
Tap á Stokkseyri

Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tapaði fyrir liði Stokkseyrar þegar önnur umferð 4. deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu B riðli fór fram á fimmtudaginn. Stokkseyri komst yfir á 15. mínútu leiksins en Pálmi Þórsson jafnaði fyrir Kormák/Hvöt rétt fyrir leikhlé. Leikurinn var svo í járnum allt þar til á 85. mínútu er Stokkseyri náði að setja mark og vann því leikinn með tveimur mörkum gegn einu.

Næstu leikur Kormáks/Hvatar verður mánudaginn 6. júlí og fer hann fram í Stykkishólmi gegn Snæfelli. Fyrsti heimaleikurinn verður sunnudaginn 12. júlí á Blönduósvelli gegn Álafossi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga