Vöfflukaffi í félagsmiðstöð. Ljósm: hunathing.is
Vöfflukaffi í félagsmiðstöð. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 28. júní 2020 - kl. 12:37
Mikill áhugi á félagsmiðstöð 60+ á Hvammstanga

Félagsmiðstöð 60+ verður starfrækt á Hvammstanga í sumar. Í síðustu viku var opið hús þar sem drög að dagskrá voru kynnt og boðið var upp á vöfflukaffi. Á vef Húnaþings vestra kemur fram að mikill áhugi sé á verkefninu og að góðar hugmyndir að námskeiðum eða félagsstarfi hafi komið fram. Svo var hlustað á harmonikkuleik og sungið saman.

Í júlí og ágúst verður alltaf opið á miðvikudögum frá klukkan 14-16 í dreifnámsaðstöðunni á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga. Þar verður hægt að fá sér kaffi, spjalla saman eða spila, fara í gönguferð eða taka þátt í námskeiðum. Einnig verður Henrike Wappler félagsráðgjafi á staðnum ef óskað er eftir ráðgjöf.

Stundum verður dagskrá á fleiri dögum eða öðrum stöðum eins og í íþróttahúsinu, á púttvelli eða í Nestúni og verður það auglýst sérstaklega. Alltaf verður heitt á könnunni á miðvikudögum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga