Uppskrift að góðum degi eru þættir á sjónvarpsstöðinni N4 þar sem farið er í ferðalag með Skúla B. Geirdal og Rakel Hinriksdóttur um Norðurland. Fyrsti þátturinn um Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra var sýndur um miðjan mánuðinn en þá var ferðast um Vestur-Húnavatnssýslu. Annar þátturinn var sýndur í gærkvöldi en þá var ferðast um Stóru-Ásgeirsá, Kolugljúfur, Víðigerði, Þrístapa, Vatnsdal og Blönduós.