Unnur og Sigurður undirrita samninginn. Ljósm: ssnv.is
Unnur og Sigurður undirrita samninginn. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 01. júlí 2020 - kl. 10:47
Viðaukasamningur undirritaður

Viðauki við Sóknaráætlun Norðurlands vestra um viðbótarstuðning var undirritaður í gær af Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Unni Valborgu Hilmarsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Í fjáraukalögum var ákveðið að veita viðbótarfjármagni til sóknaráætlunar landshluta til að sporna við áhrifum kórónuveirufaraldursins á landsbyggðinni. Fjárhæðin var samtals 200 milljónir og komu 26 milljónir í hlut Norðurlands vestra.

Stjórn SSNV ákvað í apríl síðastliðnum að verja allt að 50 milljónum á næstu mánuðum í átaksverefni til eflingar atvinnu- og menningarlífs á Norðurlandi vestra. Auglýsta var eftir hugmyndum að verkefnum og bárust 90 tillögur. Ákveðið var að styrkja 14 verkefni í þremur flokkum, sjá hér.

„Gengið hefur verið frá samningum um vel flest þeirra verkefna sem skilgreind voru og vinna við þau þegar hafin. Sá skammi tími sem leið frá því að ríkisstjórn ákvað að veita viðbótar fjármagni inn í sóknaráætlun landshlutans og þar til verkefni hófust sýnir hversu öflugur og skilvirkur farvegur áætlanirnar eru. Þar skiptir hin mikla þátttaka íbúa svæðisins með innsendum hugmyndum miklu máli og er vert að þakka fyrir góð viðbrögð,“ segir á vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga