Fréttir | 02. júlí 2020 - kl. 10:37
Áhrif samgönguáætlunar á Norðurland vestra

Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er samantekt um hvað nýsamþykkt samgönguáætlun þýðir fyrir svæðið en hún tekur til áranna 2020-2034. Í henni kemur fram að framkvæmdir við Þverárfjallsveg um Refasveit skuli fara fram á fyrsta tímabili áætlunarinnar eða á árunum 2020-2024. Á öðru og þriðja tímabili eru settir þrír milljarðar í framkvæmdir við Vatnsnesveg og honum flýtt að hluta um eitt framkvæmdatímabil.

Báðar þessar framkvæmdir eru forgangsverkefni í sameiginlegri samgönguáætlun landshlutans sem SSNV samþykkti í júní í fyrra.

Samkvæmt viðmiðunum sem koma fram í áætluninni mun Alexandersflugvöllur í Skagafirði falla undir svokallaða skosku leið. Samkvæmt henni munu íbúar landsbyggðarinnar sem búa í meira en 275 kílómetra fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu fá endurgreiddan hluta fargjalds af ferð til og frá Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að framkvæmd hennar hefjist í september 2020, að því er segir á vef SSNV.

Þá segir þar einnig að ekki liggi fyrir enn hversu háar fjárhæðir komi inn á Norðurland vestra í viðhaldsframkvæmdir á stofn- og tengivegum. „Ljóst er af nægum verkefnum er að taka hvað þá varðar en forgangsvegir í þeim flokki eru samtals 225 km,“ segir á vefnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga