Fréttir | 02. júlí 2020 - kl. 11:24
Rafmagnstruflanir í Húnaþingi vestra um miðnættið

Aðfaranótt 3. júlí verður viðhaldsvinna í aðveitustöð Hrútatungu. Á þeim tíma verður Húnaþing vestra rekið á varaafli og á varaleiðum. Það þýðir að rafmagnstruflanir verða um miðnætti og að vinnu lokinni, um klukkan 6 um morguninn. Ekki er hægt að útiloka langvarandi rafmagnsleysi þennan tíma.

Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga