Sigurvegarar mótsins
Eyþór Franzson Wechner sigraði à meistaraflokki karla
Birna Sigfúsdóttir sigraði à meistaraflokki kvenna
Hafsteinn Pétursson sigraði à 1. flokki karla
Fréttir | 05. júlí 2020 - kl. 17:57
Meistaramót Golfklúbbsins Óss var haldið dagana 3. og 4. júlí á Vatnahverfisvelli í ágætis veðri. Eyþór Franzon Wechner sigraði í meistaraflokki karla á 170 höggum, Jón Jóhannsson varð í öðru sæti á 175 höggum og Valgeir M. Valgeirsson í þriðja sæti með 186 högg. Í meistaraflokki kvenna sigraði Birna Sigfúsdóttir á 205 höggum og Jóhanna G. Jónasdóttir lenti í öðru sæti á 230 höggum.
Í fyrsta flokki karla sigraði Hafsteinn Pétursson með 201 högg, Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson lenti í örðu sæti á 205 höggum og Helgi Haraldsson í þriðja sæti á 220 höggum.
Úrslitin á mótinu:
Meistaraflokkur karla.
1.sæti Eyþór Franzson Wechner.
2.sæti Jón Jóhannsson.
3.sæti Valgeir M Valgeirsson.
Meistaraflokkur kvenna.
1.sæti Birna Sigfúsdóttir.
2.sæti Jóhanna G Jónasdóttir
1. flokkur karla.
1.sæti Hafsteinn Pétursson.
2.sæti Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson.
3.sæti Helgi Haraldsson.