Fréttir | 06. júlí 2020 - kl. 14:30
Kjarnafæði og Norðlenska að sameinast

Eigendur Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála samruna félaganna. Kjarnafæði er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, en Norðlenska er í eigu Búsældar, sem er í eigu um 500 bænda á Íslandi. Í tilkynningu segir að með samruna félaganna séu eigendur að bregðast við breytingum í rekstrarumhverfi matvælaiðnaðar undanfarin misseri. Það sé mat eigendanna að sameinað félag sé betur í stakk búið til að veita viðskiptavinum sínum og birgjum, ekki síst bændum, góða þjónustu á samkeppnishæfu verði.

Kjarnafæði og Norðlenska hafa átt í viðræðum um samruna frá því á haustmánuðum 2018 en líkt og fram hefur komið hafa félögin nú náð saman um þau atriði sem útaf stóðu. Samkomulag um samruna félaganna er með fyrirvara um samþykki Samkeppnisyfirvalda og samþykki hluthafafundar Búsældar.

Kjarnafæði á m.a. afurðastöð SAH á Blönduósi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga