Ljósm: ssnv.is
Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 08. júlí 2020 - kl. 15:33
Yfir 100 gönguleiðir komnar á blað

Hnitsetning og merking gönguleiða á Norðurlandi vestra er eitt af sérstökum átaksverkefnum vegna áhrifa Covid 19. Tveir starfsnemar voru ráðnir til verksins með stuðningi Vinnumálastofnunar. Annar er með ráðningarsamband við Akrahrepp og hinn við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Nemarnir hafa verið að undirbúa verkefnið og skilgreina þær gönguleiðir sem ganga á.

Á vef SSNV kemur fram að yfir 100 leiðir séu komnar á blað og að nú hefjist vinna við að ganga þær og safna þeim saman. Hefur gönguhópur Skagafjarðar lagt verkefninu leið með því að hnita þær leiðir sem hópurinn gengur. Stofnaður hefur verið aðgangur á Wikiloc til að safna leiðunum saman en þeim verður í framhaldinu deilt á fleiri sambærilegar síður. Segir á vef SSNV að búast megi við að þangað inn tínist góðar gönguleiðir smátt og smátt í sumar og því tilvalið fyrir íbúa landshlutans að reima á sig gönguskóna og njóta náttúrunnar í fallega landshlutanum okkar.

Þeir sem hafa ábendinga um áhugaverðar gönguleiðir eru hvattir til að hafa samband.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga