Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:31 0 0°C
Laxárdalsh. 10:31 0 0°C
Vatnsskarð 10:31 0 0°C
Þverárfjall 10:31 0 0°C
Kjalarnes 10:31 0 0°C
Hafnarfjall 10:31 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Pistlar | 08. júlí 2020 - kl. 17:14
Slysin gera ekki boð á undan sér
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Það var skiljanlega átakanlegt að koma að slysinu á Kjalarnesinu á dögunum þar sem tveir létust og einn slasaðist alvarlega. Biðin á slysstað eftir hjálpar aðilum, björgunarsveit, lögreglu, slökkviliði, sjúkrabílum og þyrlunni var sannarlega ekki auðveld. Maður fann sig eitthvað svo smáan og vanmáttugan og geta svo lítið gert annað en gert krossmark og farið með örvæntingarfulla bæn.

Hugur minn og bænir hafa síðustu daga verið hjá og fyrir hinum látnu, fjölskyldu þeirra og vinum. Einnig hinum slasaða, öllu hans fólki og félögunum í vélhjólaklúbbnum þeirra. Þá er hugur minn ekki síður hjá ökumanni húsbílsins sem hjólin runnu fyrir og bara öllum sem upplifðu þennan harmleik eða að slysinu komu.

"Jesús minn" hrópaði kona sem var á svæðinu. Tek ég undir með henni. Það er líklega það eina sem hægt er að hrópa við svona aðstæður.

Sjúkrabíll endaði út í móa

Einnig var skelfilegt að upplifa einn af sjúkrabílunum sem á svæðið kom geta ekki stöðvað á þessum umrædda sleipa vegarkafla og skautaði hann út fyrir veg og endaði út í móa. Mildi að ekki fór verr í því tilfelli. Ég hélt að bílinn myndi velta. Það var aðeins fyrir hæfni bílstjóra sjúkrabílsins að hann valt ekki eða skall á slökkvibíl, lögreglubíl eða hjólum eða bara fólki sem á svæðinu var. Eftir að hafa skransað hressilega og runnið á vegarkaflanum í stutta stund tók bílstjórinn greinilega þá réttu ákvörðun að stýra bílnum á hárréttu augnabliki bara út fyrir veg þar sem hann stöðvaðist loks úti í móa.

Það er svo þungt að missa

Það er svo þungt að missa. Tilveran er skekin á svo yfirþyrmandi hátt. Angist fyllir hugann. Örvæntingin og umkomuleysið verður algjört. Tómarúmið hellist yfir og tilgangsleysið virðist blasa við.

Það er svo sárt að sakna en það er gott að gráta. Tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga sem þú ýmist einn eða ein átt eða þið saman sem fjölskylda eða vinahópur. Minningar sem enginn getur afmáð eða frá þér eða ykkur tekið.

Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna.

Gráttu, "því að sælir eru sorgbitnir því að þeir munu huggaðir verða." Og sælir eru þeir sem eiga von á Krist í hjarta því að þeir munu lífið erfa og eignast framtíð bjarta.

Ævin getur sannarlega verið stutt og endað snögglega en lífið er langt. Það lifir. Höldum í vonina. Stöndum saman í bæn og samhug.

Með hlýrri friðar- samstöðu- og kærleikskveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið