Fréttir | 11. júlí 2020 - kl. 08:24
Húnavökumót Terra í golfi

Húnavökumótið í golfi verður haldið á Vatnahverfisvelli við Blönduós laugardaginn 18. júlí. Keppt verður í punktakeppni með forgjöf, einn almennur flokkur. Hámarksleikforgjöf karla og kvenna er 36. Ræst verður út samtímis á öllum teigum klukkan 9. Nándarverðlaun á par þrjú brautum. Skráning á www.golf.is til klukkan 19 föstudaginn 17. júlí. Mótsgjald er 4.000 krónur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga