Hnúfubakar að veiðum í Húnaflóa. Ljósm: FB/Auðunn Blöndal.
Hnúfubakar að veiðum í Húnaflóa. Ljósm: FB/Auðunn Blöndal.
Fréttir | 12. júlí 2020 - kl. 14:43
Hnúfubakar að veiðum við Blönduós

Hnúfubakar hafa síðustu daga verið að veiðum í Húnafirði og hafa þeir sést vel frá Blönduósi. Auðunn Blöndal náði ágætum myndum af hvölunum frá Brekkubyggðinni og birtir á Facebook síðu sinni. Þá setti Höskuldur B. Erlingsson flygildi sitt á loft í gær og flaug því til hvalanna og náði mögnuðum myndum sem hann hefur gert myndband úr og birt á Facebook og Youtube.

Myndband Höskuldar:

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga