Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:20 0 0°C
Laxárdalsh. 03:20 0 0°C
Vatnsskarð 03:20 0 0°C
Þverárfjall 03:20 0 0°C
Kjalarnes 03:20 0 0°C
Hafnarfjall 03:20 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Sigurður Ingi á fjöllum. Ljósm: stjornarradid.is
Sigurður Ingi á fjöllum. Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 13. júlí 2020 - kl. 09:33
Lagning ljósleiðara milli Hveravalla og Blöndudals

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti 12. júní síðastliðinn samning við Neyðarlínuna um lagningu ljósleiðara milli Hveravalla og Blöndudals. Að því verkefni loknu kemst á önnur ljósleiðaratenging milli Suðurlands og Norðurlands um hálendið, sem bætir bæði öryggi og afkastagetu fjarskipta á leið strengsins sem og grunnkerfis fjarskipta hér á landi. Sagt er frá þessu á vef Stjórnarráðsins.

Þetta verkefni kemur í kjölfar lagningar ljósleiðara, milli Suðurlands og Hveravalla með útstigi til Kerlingafjalla, samhliða rafstreng sem leysir af hólmi dísilvélar sem rekstraraðilar á svæðinu hafa hingað til reitt sig á. Verklok voru kynnt í Myrkholti í Bláskógabyggð í vikunni þar sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ávarpaði ráðstefnuna ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Sigurður Ingi sagði: „Mikilvægt er að tryggja örugg fjarskipti allt árið um kring, á fjölförnum leiðum um hálendi Íslands. Stórt skref var stigið þegar lokið var við að leggja ljósleiðara milli Bláfellsháls og Hveravalla með útstigi til Kerlingarfjalla. Með ljósleiðara milli Hveravalla og Blöndudals verður komið á samfellt fjarskiptasamsamband um Kjöl. Þessi nýi ljósleiðarastrengur hefur þegar umbylt bæði aðgengi og öryggi fjarskipta á þessari leið. Þá hefur risastórt skref verið stigið varðandi endurnýjanlega orkugjafa á Kili og þar með heyra olíuflutningar til hálendismiðstöðva á svæðinu sögunni til.“

Heildarverkefnið er uppfærsla bæði fjarskipta-og raforkuinnviða með framlagi og aðkomu margra aðila og er afbragðs dæmi um vel heppnaða samvinnuleið í innviðamálum. Verkefnið er samvinnuverkefni Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Húnavatnshrepps auk Neyðarlínunnar, Fjarskiptasjóðs, Rarik og ferðaþjónustufyrirtækja í Árbúðum, Kerlingafjöllum og Hveravöllum.

Samningurinn sem ráðherra staðfesti er á grundvelli fjárfestingaátaks ríkisstjórnarinnar og hljóðar upp á 40 m.kr. en áður hafði Fjarskiptasjóður f.h. samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins samþykkt á fundi 17. maí 2019 að styrkja þetta verkefni um 35 m.kr. með hliðsjón af ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að styrkja fjarskipta- og raforkuinnviði á Kili.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið