Hamarsbúð
Hamarsbúð
Fréttir | 28. júlí 2020 - kl. 08:47
Kaffihlaðborð í Hamarsbúð

Í áraraðir hafa Húsfreyjurnar boðið upp á veislur í Hamarsbúð á Vatnsnesi. Um verslunarmannahelgina ætla þær að bjóða upp á kaffihlaðborð með rjómapönnukökum, rabarbarakökum, kanil- og möndlutertum, smurbrauði og öðru fjölbreyttu meðlæti að þeirra hætti.

Hlaðborðið verður opið á laugardaginn og sunnudaginn milli klukkan 14 og 18. Verð á hlaðborði er 2.000 krónur fyrir 13 ára og eldri og 1.000 krónur fyrir 6-12 ára. Enginn posi verður á staðnum.

Listaverk Aðalheiðar Jónsdóttur verða til sýnis á staðnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga