Fréttir | 28. júlí 2020 - kl. 09:51
Smáframleiðendur á ferðinni

Smáframleiðendur á Norðurlandi vestra og Vörusmiðja BioPol eru á ferðinni í sumar um svæðið á sölubíl en í honum má m.a. finna grænmeti, blóm og bætiefni, krem og kjöt svo eitthvað sé nefnt. Bíllinn verður í Húnavatnssýslum á ný næstu daga. Á morgun verður hann við Riishúsið á Borðeyri klukkan 10-13 og við Sjávarborg á Hvammstanga klukkan 15-18. Hann verður við B&S Restaurant á Blönduósi á fimmtudaginn klukkan 10-13 og í Víðigerði klukkan 15-18. Bíllinn verður svo á Skagaströnd á föstudaginn við Vörusmiðju BioPol klukkan 10-13.

Tólf smáframleiðendur á Norðurlandi vestra og Vörusmiðja BioPol hafa tekið höndum saman um þetta skemmtilega verkefni. Framleiðendurnir eru Breiðargerði, Gandur, Garðyrkjustöðin Laugarmýri, Grilllausnir Kambakoti,  Gróðurhúsið Starrastöðum, Hraun á Skaga, Kaldakinn II, Kjötvinnslan Birkihlíð, Pure Natura, Rúnalist, Skrúðvangur og Sölvanes.

Vörusmiðja BioPol á Skagaströnd heldur utan um verkefnið sem er eitt af sérstökum átaksverkefnum vegna áhrifa Covid 19 sem styrkt er af Sóknaráætlun Norðurlands vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga