Fréttir | 31. júlí 2020 - kl. 12:38
Sumarleikhús æskunnar setur upp leiksýningu

Verkefni Sumarleikhúss æskunnar í ár er uppsetning, í styttri leikgerð, á verki William Shakespeare, Jónsmessunæturdraumur. Sumarleikhúsið er verkefni á vegum Handbendi brúðuleikhúss á Hvammstanga og stjórnandi þess, Greta Clough, sér um leikstjórn og Arnar Hrólfsson er aðstoðarleikstjóri.  Sýningin verður í Félagsheimili Hvammstanga 15. ágúst klukkan 19.

Fimmtán hæfileikarík ungmenni úr Húnavatnssýslum á aldrinum 6-17 ára taka þátt í uppsetningunni. „Það er mikil eftirspurn eftir fleiri tækifærum til listsköpunar á svæðinu, bæði frá ungmennum og foreldrum. Sumarleikhús æskunnar hefur fengið viðbrögð víða að, til dæmis frá Hólmavík, en þá eru fjarlægðir náttúrulega farnar að hafa áhrif…..nokkrir krakkar hafa samt komið frá Blönduósi og það hefur verið gaman að sjá hópinn stækka og nýja vináttu blómstra,“ segir í tilkynningu frá Handbendi brúðuleikhúsi.

Og þar segir einnig: „Krakkarnir eru að takast á við að setja upp einn frægasta gamanleik Shakespeare með sköpunargáfu og eldmóð að vopni og hlakka til að sýna afraksturinn sveitungum og vinum. Þetta er virkilega skemmtileg sýning. Það eru ástarflækjur, fjörugir og hrekkjóttir blómálfar, töfrar og fullt af og skemmtilegum persónum…”

Sýningin verður þann 15. ágúst næstkomandi klukkan 19 í Félagsheimili Hvammstanga.

Allir aldurshópar velkomnir.

Miðaverð er 1.000 krónur við hurð.

Börn yngri en 5 ára fá frítt.

Vegna hertra sóttvarnaaðgerða í tengslum við Covid-19 faraldurinn verða aðeins 80 miðar í boði á sýninguna, því er nauðsynlegt að staðfesta komu sína í gegnum viðburðinn á Facebook. Allir áhorfendur sem fæddir eru fyrir 2005 þurfa að gegna grímuskyldu innanhúss, til að öryggi allra sé tryggt. Uppröðun sæta verður með þeim hætti að ótengdir aðilar sitji ekki saman og tveggja metra reglunni verður fylgt.

Um Gretu Clough
Greta er verðlaunuð leikhúskona og verk hennar hafa verið sýnd um heim allan. Hún er þekkt fyrir ástríðu og hugmyndaauðgi í leikhúsvinnu með ungu fólki. Á síðasta ári vann hún að eftirfarandi sýningum: Sæhjarta (Ísland), The Further Adventures of the Owl and the Pussycat (Little Angel Theatre, Bretland), FORM (Ísland), og var leikstjóri brúðuleiks í íslensku kvikmyndinni Dýrið. Hér á heimaslóðum setti Greta upp Skógarlíf (2019) og Snædrottninguna (2018) fyrir Leikflokk Húnaþings vestra. Hún lauk námi frá East 15 Acting School í Lundúnum en ástríða hennar fyrir leikhúsi var vakin þegar hún var 13 ára gömul og hún hóf að leika með áhugaleikhúsinu í sínu nærumhverfi, í hinum dreifðu byggðu Vermont-fylkis í Bandaríkjunum. Þegar hún var 16 ára stofnaði Greta sitt fyrsta leikfélag – The Idle Hands – sem framleiddi og skapaði rómaðar sýningar samdar af og fyrir ungt fólk með stuðningi atvinnufólks af svæðinu. Tuttugu og tveimur árum síðar er það henni sönn ánægja að styðja ungt fólk sem er að taka fyrstu skrefin í sviðslistum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga