Vortónleikar í Blönduóskirkju  •   Viljayfirlýsing um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra  •   Kökukeppni Undirheima á Skagaströnd  •   Sigraði sinn riðil í Skólahreysti  •   Stefna á hópslysaæfingu í maí  •   Sigríður endurkjörin formaður kjördæmisráðs  •   Háskólinn á Hólum hlýtur viðurkenningu fyrir framsækið og metnaðarfullt háskólastarf  •   Íbúafundur á Skagaströnd  •  
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Fréttir | 31. júlí 2020 - kl. 12:58
Hertar aðgerðir taka gildi
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur rætt við umsjónarmenn tjaldsvæða í umdæminu vegna hertra sóttvarnarreglna sem tóku gildi á hádegi og segir í tilkynningu að allir séu þeir jákvæðir og tilbúnir til að takast á við verkefnið. Vegfarendur um umdæmið eru hvattir til að kynna sér hvort laust pláss sé til staðar á tjaldsvæðum áður en lagt er af stað í ferðalag um helgina.
Í tilkynningu aðgerðastjórnar koma fram hertar aðgerðir vegna Covid 19:
Tveggja metra reglan skylda og 100 manna samkomutakmarkanir.
Aðgerðir innanlands
- Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðist við 100 fullorðna.
- Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi verði viðhöfð sú regla að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga en að sú ráðstöfun verði ekki lengur valfrjáls.
- Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægð milli ótengdra einstaklinga með fjöldatakmörkun verði krafist notkunar andlitsgrímu sem hylur nef og munn. Þetta á t.d. við um almenningssamgöngur, þ.m.t. innanlandsflug og farþegaferjur, og starfsemi s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu ættu að lágmarki uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna CEN.
- Vinnustaðir, opinberar byggingar, verslanir og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi skipuleggi starfsemi sína í samræmi við ofangreint og tryggi að ekki séu fleiri en 100 einstaklingar í sama rými og að í minni rýmum séu ekki fleiri en svo að hægt sé að tryggja 2 metra fjarlægð milli einstaklinga.
- Verslanir, opinberar byggingar og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi,
- tryggi aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa,
- sinni vel þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er,
- minni almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum.
- Sundlaugar og veitingastaðir tryggi að gestir geti haft 2 metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjöldatakmörkun í samræmi við stærð hvers rýmis.
- Starfsemi sem í eðli sínu felur í sér að gestir noti sameiginlegan búnað s.s. íþróttastarf, líkamsræktarstöðvar, spilakassar og spilasalir geri hlé á starfsemi eða sótthreinsi slíkan búnað milli notenda.
- Söfn, skemmtistaðir og aðrir opinberir staðir geri hlé á starfsemi sé ekki hægt að tryggja að farið sé eftir fjöldatakmörkun eða að bil milli ótengdra aðila sé yfir 2 metrum.
- Opnunartími skemmti- og vínveitingastaða verði áfram til kl. 23:00.
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |