Fréttir | 31. júlí 2020 - kl. 12:58
Hertar aðgerðir taka gildi

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur rætt við umsjónarmenn tjaldsvæða í umdæminu vegna hertra sóttvarnarreglna sem tóku gildi á hádegi og segir í tilkynningu að allir séu þeir jákvæðir og tilbúnir til að takast á við verkefnið. Vegfarendur um umdæmið eru hvattir til að kynna sér hvort laust pláss sé til staðar á tjaldsvæðum áður en lagt er af stað í ferðalag um helgina.

Í tilkynningu aðgerðastjórnar koma fram hertar aðgerðir vegna Covid 19:

Tveggja metra reglan skylda og 100 manna samkomutakmarkanir.

Aðgerðir innanlands

  • Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðist við 100 fullorðna.
  • Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi verði viðhöfð sú regla að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga en að sú ráðstöfun verði ekki lengur valfrjáls.
  • Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægð milli ótengdra einstaklinga með fjöldatakmörkun verði krafist notkunar andlitsgrímu sem hylur nef og munn. Þetta á t.d. við um almenningssamgöngur, þ.m.t. innanlandsflug og farþegaferjur, og starfsemi s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu ættu að lágmarki uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna CEN.
  • Vinnustaðir, opinberar byggingar, verslanir og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi skipuleggi starfsemi sína í samræmi við ofangreint og tryggi að ekki séu fleiri en 100 einstaklingar í sama rými og að í minni rýmum séu ekki fleiri en svo að hægt sé að tryggja 2 metra fjarlægð milli einstaklinga.
  • Verslanir, opinberar byggingar og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi,
    • tryggi aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa,
    • sinni vel þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er,
    • minni almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum.
  • Sundlaugar og veitingastaðir tryggi að gestir geti haft 2 metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjöldatakmörkun í samræmi við stærð hvers rýmis.
  • Starfsemi sem í eðli sínu felur í sér að gestir noti sameiginlegan búnað s.s. íþróttastarf, líkamsræktarstöðvar, spilakassar og spilasalir geri hlé á starfsemi eða sótthreinsi slíkan búnað milli notenda.
  • Söfn, skemmtistaðir og aðrir opinberir staðir geri hlé á starfsemi sé ekki hægt að tryggja að farið sé eftir fjöldatakmörkun eða að bil milli ótengdra aðila sé yfir 2 metrum.
  • Opnunartími skemmti- og vínveitingastaða verði áfram til kl. 23:00.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga