Fréttir | 31. júlí 2020 - kl. 13:19
Breytingar í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi

Íþróttamiðstöðin á Blönduósi hefur gripið til aðgerða vegna hertra sóttvarnarreglna. Gestafjöldi er nú takmarkaður við 100 manns en börn fædd 2005 og síðar eru undanskilin. Þó að fjöldi sé takmarkaður við 100 þá getur sá fjöldi aldrei verið á sundlaugarsvæðinu vegna tveggja metra reglunnar, segir í tilkynningu.

Í henni segir að hæfilegur fjöldi gesta í pottunum séu 5-6 manns, í vaðlauginni 12 manns og í sundlauginni 20 manns. Gestir eru beðnir um að virða tveggja metra regluna í klefum, sturtum og gufubaði. Þá hefur þreksalnum verið lokað vegna aukins álags og í ljósi aðstæðna á meðan hertar aðgerðir eru í gildi. Viðskiptavinir sem eiga tímabilskort fá framlengingu sem lokunartímanum nemur.

Í tilkynningu segir:

Við höfum jafnað hitann í báðum pottunum í 37° til 39° gráður. Einnig hækkað hitann á sundlauginni úr 29° í 31°. Við gætum þurft að fara í tímatakmarkanir í sundlauginni en ætlum ekki að byrja á því og sjá hvernig það gengur upp.

Spritt er í boði fyrir gesti í afgreiðslu og klefum.

Engar breytingar á opnunartíma um Verslunarmannahelgina.

Íþróttamiðstöðin verður opin frá kl. 10:00 til 20:00 um Verslunarmannahelgina og á frídegi verslunarmanna er opið frá 08:00 til 21:00.  

Virðum hvort annað og sýnum umburðarlyndi í þessu ástandi.

Við erum öll Almannavarnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga