Tilkynningar | 04. ágúst 2020 - kl. 10:07
Takmarkanir á aðgengi Félags- og skólaþjónustu A-Hún. vegna COVID-19
Samkvæmt aðgerðaáætlun Félags- og skólaþjónustunnar A-Hún. vegna COVID-19 hafa verið settar takmarkanir á aðgengi að Félags- og skólaþjónustunni.
- Allir þjónustuþættir eru virkir, þ.e. félags- og skólaþjónusta, barnavernd, þjónusta við aldraða sem og grunnþjónusta sveitarfélaganna sem er undir verkstjórn og ábyrgð Félags- og skólaþjónustunnar, þ.e. skipulag félagslegrar heimaþjónustu og liðveisla. Starfsemi félagslegrar heimaþjónustu er á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags og helst óbreytt að sinni.
- Ef einstaklingar eru með liðveislu eða heimaþjónustu og eru í sérstökum áhættuhópi skulu einstaklingar meta það sjálfir hvort þeir vilja njóta þjónustunnar áfram. Í samráði við sveitarfélagið er í einhverjum tilvikum hægt að breyta fyrirkomulagi til þess að reyna að takmarka áhættu eins og hægt er.
- Fundum er frestað sem ekki eru brýnir og frekar notast við fjarfundi, símafundi og tölvupóst. Upplýsingar um starfsfólk Félags- og skólaþjónustunnar eru á heimasíðunni www.felahun.is.
- Barnaverndarstarf verður með hefðbundnum hætti, vitjunum eða viðtölum í barnavernd verður ekki frestað nema mjög brýn ástæða sé til (þ.e. einstaklingur í sóttkví eða einangrun).
- Sveitarfélög sjá um matarsendingar til skjólstæðinga í heimahúsum.
- Ekki hefur verið lokað fyrir aðgang að Hnitbjörgum íbúðakjarna á Blönduósi. Aðstandendur og gestir eru þó beðnir um að gæta varúðar þar sem einhverjir íbúa tilheyra áhættuhópi og eru í meiri hættu á að smitast af COVID-19 veirunni en aðrir. Er þeim tilmælum beint til fólks sem er með kvef eða flensulík einkenni að gæta fyllstu varúðar og koma ekki í heimsókn til íbúa. Einstaklingar sem hafa ferðast utanlands eru beðnir um að koma ekki í heimsókn fyrr en í fyrsta lagi að 14 dögum liðnum eftir heimkomu.
Takmarkanir eru á heimsóknum í stofnanir og húsnæði Félags- og skólaþjónustunnar, nema fyrir þá sem þangað eiga brýn erindi. Það er í höndum forstöðumanna stofnana að sjá um framkvæmd á þessu. Við óskum eftir góðri samvinnu og skilningi. Nánar tiltekið er um að ræða:
Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu A-Hún, Flúðabakka 2, 540 Blönduósi
- Fólki er bent á að hafa fyrst samband við starfsmenn í síma eða tölvupósti áður en komið er á skrifstofuna.
- Reynt er eftir fremsta megni að sinna erindum í gegnum síma eða tölvupóst nema brýn nauðsyn sé til annars.
- Lokun eða frekari takmarkanir á heimsóknum verða tilkynntar ef til þeirra kemur.
Upplýsingar um starfsfólk
Sara Lind Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri, sara@felahun.is s. 455-4170/455-4171/863-5013
Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri, thordis@felahun.is, s. 455-4174/661-5812
Ásta Þórisdóttir, verkefnastjóri – ráðgjafi, asta@felahun.is, s. 455-4172/ 893-4188
Sigrún Líndal, iðjuþjálfi – ráðgjafi, sigrun@felahun.is, s. 455-4173/ 844-5013
Neyðarnúmer barnaverndar og heimilisofbeldis er 112 (eftir kl. 16 virka daga, um helgar og á hátíðisdögum).
Dvalarheimilið Sæborg
Ekki hefur verið lokað fyrir heimsóknir á Sæborg dvalarheimili aldraðra. Þá eru aðstandendur sem hafa verið erlendis beðnir að koma ekki í heimsókn fyrr en eftir 14 daga frá komu til landsins. Einnig eru gestir beðnir um að virða eftirfarandi heimsóknareglur:
- Alls ekki koma í heimsókn ef:
- Þú ert í sóttkví.
- Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
- Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
- Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
- Heimsóknartími er opinn, en láta vita af sér.
- Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna Rakning C-19.
- Miðað er við að gengið sé um aðaldyr stofnunarinnar. Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni. Spritt er í hverju herbergi.
- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa og starfsfólk eins og hægt er.