Fréttir | 07. ágúst 2020 - kl. 12:06
Matarhátíðin Réttir Food Festival

Matarhátíðin Réttir Food Festival verður haldin á Norðurlandi vestra dagana 14.-23. ágúst næstkomandi. Þessa tíu daga verður mikið um dýrðir með fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum og veitingastaðir og framleiðendur á öllu svæðinu bjóða gestum sínum upp á ógleymanlega upplifun í mat og drykk, eins og segir á vef hátíðarinnar.

Landshlutinn státar af ríkri matarhefð þar sem matarupplifun er í hávegum höfð og veitingastaðir og barir um allt svæðið kappkosta að bjóða upp á afbragðs mat og drykk frá hinum ýmsu heimshornum. Flestir þeirra bjóða upp á árstíðabundna matseðla, sem endurspegla hráefnið af svæðinu með áherslu á það ferskasta hverju sinni. Sem mikið landbúnaðar-og sjávarútvegssvæði stendur Norðurland vestra fyrir mikla grósku í framleiðslu á hráefni og staðbundnum vörum. Hér bjóða framleiðendur gestum sínum upp á að kynnast afurðum sínum í opnu húsi með fræðslu og áhugaverðu smakki.

Vefsíða hátíðarinnar er www.rettir.is en á henni má sjá hvaða veitingastaðir og barir taka þátt í hátíðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga