Björn Líndal Traustason
Björn Líndal Traustason
Fréttir | 08. ágúst 2020 - kl. 19:15
Nýr kaupfélagsstjóri ráðinn til Kaupfélags Vestur-Húnvetninga

Stjórn Kaupfélags Vestur-Húnvetninga hefur ráðið Björn Líndal Traustason í starf kaupfélagsstjóra. Björn Líndal hefur síðustu ár starfað sem sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Strandamanna en gegndi áður stöðu framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hann er með Bs. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og Ma. gráðu í skattarétti og reikningsskilum frá Háskóla Íslands. Björn tekur við starfinu af Reimari Marteinssyni 1. nóvember næstkomandi.

„Kaupfélagið hefur starfað frá árinu 1909 og er því 111 ára. Það eru ekki mörg fyrirtæki á Íslandi sem eiga svo langa og farsæla sögu. Ég tek við afar góðu búi þar sem Kaupfélagið hefur eflst mjög á undanförnum árum undir öruggri stjórn Reimars Marteinssonar sem stýrt hefur félaginu s.l. 13 ár. Ég finn til mikillar ábyrgðar og auðmýktar gagnvart starfinu og sögu Kaupfélagsins,“ segir Björn Líndal í tilkynningu.

Kaupfélag Vestur-Húnvetninga var stofnað þann 20. mars 1909 á Hvammstanga og er félagssvæði þess Húnaþing vestra. Félagsmenn eru 383 talsins í sex félagsdeildum. Á Hvammstanga rekur félagið kjörbúð, byggingarvöruverslun og búvöruverlsun. Félagið á einnig og rekur fasteignir sem hýsa m.a. starfsemi Selaseturs Íslands, Fæðingarorlofssjóðs og veitingastaðarins Sjávarborgar. KVH á einnig hlut í nokkrum fyrirtækjum m.a. 50% hlut í Sláturhúsi KVH ehf (SKVH). Rekstartekjur félagsins árið 2019 námu um 864 milljónum og var hagnaður af rekstri samstæðunnar rúmar 50 milljónir króna. Heildareignir félagsins námu um 728 milljónum króna og var eigið fé í árslok 2019 um 518 milljónir króna. Fjöldi ársverka hjá félaginu eru 19.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga