Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:44 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kolfinna Kristínardóttir hefur verið ráðin í starf atvinnuráðgjafa með áherslu á nýsköpun hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Alls bárust 34 umsóknir um starfið sem auglýst var í maí síðastliðnum. Kolfinna hefur MA-próf í hagnýtri menningarmiðlun og BS-próf í ferðamálafræði, bæði frá Háskóla Íslands. Starfsstöð hennar verður á Sauðárkróki.
Hún setti upp Matarhátíð í Skagafirði í tengslum við meistaraverkefni sitt þar sem áhersla var lögð á nýsköpun í matarmenningu og kynningu á skagfirsku hráefni og framleiðslu. Kolfinna hefur stjórnenda- og rekstrarreynslu úr störfum sínum hjá Wow Air auk þess sem hún hefur sinnt stjórnunarstörfum í ferðaþjónustu. Kolfinna hefur störf 1. september næstkomandi.
Í tilkynningu frá SSNV segir: "Með ráðningu atvinnuráðgjafa með nýsköpun með sérsvið er verið að auka áherslu á þennan mikilvæga þátt til aukinnar verðmætasköpunar í landshlutanum. Er það í takt við áherslur í Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árin 2020-2024. Í áætluninni er meðal annars lögð áhersla á fullvinnslu afurða sem framleiddar eru á svæðinu, fjölgun vaxtarbrodda sem og styrkingu grunnstoða í atvinnulífinu, svo sem í ferðaþjónustu, landbúnaði og sjávarútvegi."
Sagt er frá ráðningunni í fundargerð stjórnar SSNV frá 3. júlí síðastliðnum sem birt er á vef samtakanna í dag. Í henni kemur einnig fram að öllum umsóknum um starf við bókhald og almenn skrifstofustörf, sem auglýst var laust til umsóknar í maí, hafi verið hafnað og ákveðið að auglýsa starfið að nýju þegar fjárhagsáætlun ársins 2021 hefur verið samþykkt. Ástæðan er sú að starfssvið viðkomandi starfsmanns hafi verið útvíkkað og hefur framkvæmdastjóra verið falið að útfæra breytinguna nánar. Alls sóttu 36 um starfið eftir að það var auglýst.
Fréttin hefur verið uppfærð
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |