Fréttir | 12. ágúst 2020 - kl. 10:18
Smáframleiðendur á ferðinni

Smáframleiðendur á Norðurlandi vestra og Vörusmiðja BioPol eru á ferðinni í sumar um svæðið á sölubíl en í honum má m.a. finna grænmeti, blóm og bætiefni, krem og kjöt svo eitthvað sé nefnt. Bíllinn er á Blönduósi þegar þetta er skrifað og verður þar til klukkan eitt. Hann verður svo í Víðigerði frá klukkan 15 til 18 í dag. Á föstudaginn verður bíllinn á Skagaströnd klukkan 15-18.

Tólf smáframleiðendur á Norðurlandi vestra og Vörusmiðja BioPol hafa tekið höndum saman um þetta skemmtilega verkefni. Framleiðendurnir eru Breiðargerði, Gandur, Garðyrkjustöðin Laugarmýri, Grilllausnir Kambakoti,  Gróðurhúsið Starrastöðum, Hraun á Skaga, Kaldakinn II, Kjötvinnslan Birkihlíð, Pure Natura, Rúnalist, Skrúðvangur og Sölvanes.

Vörusmiðja BioPol á Skagaströnd heldur utan um verkefnið sem er eitt af sérstökum átaksverkefnum vegna áhrifa Covid 19 sem styrkt er af Sóknaráætlun Norðurlands vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga