Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Mánudagur, 2. október 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Október 2023
SMÞMFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930311234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:00 NNV 5 1°C
Laxárdalsh. 01:00 N 10 4°C
Vatnsskarð 01:00 NNA 8 4°C
Þverárfjall 01:00 NA 8 4°C
Kjalarnes 01:00 331.0 3 7°C
Hafnarfjall 01:00 ANA 12 9°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
27. september 2023
Eftir Sigurjón Þórðarson
25. september 2023
58. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
23. september 2023
Eftir Bjarna Jónsson
19. september 2023
Eftir Svölu Runólfsdóttur, Elínu S. Sigurðardóttur og Dagnýju Sigmarsdóttur
13. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
12. september 2023
Nöldrið | 06. september 2020 - kl. 21:10
Sumri hallar hausta fer

Ljúft, en um margt óvenjulegt sumar er senn á enda runnið og veturinn farinn að minna á sig með hvíta fjallatoppa. Ennþá getum við þó vonast eftir fallegum sólskinsdögum ef við erum heppin.

Hér um slóðir hefur lífið gengið sinn vanagang þrátt fyrir skemmtanatakmarkanir og alls konar frelsishöft fólks. Margir hafa verið duglegir að ferðast innanlands og mikið hef ég notið þess að koma á staði sem ég hef ekki heimsótt árum saman. Mikið er gaman að sjá hvað út um allt land er verið að byggja upp þjónustu við ferðamenn og komin söfn og alls konar upplifun fyrir gesti og ekki má gleyma öllum flottu hótelunum og matnum. Lítil kaffi og/eða veitingahús hafa sprottið upp út um allt sem bjóða upp á spennandi og girnilegar veitingar, oftar en ekki með hráefni frá viðkomandi svæði. Það þarf ekki lengur að fara „bara” út að borða þegar verið er í Reykjavík. Það er hægt að gera það hvar sem er og það sem boðið er uppá og fram borið úti á landsbyggðinni gefur fínustu veitingahúsum höfuðborgarinnar ekkert eftir.

Segja má að veiruskömmin með aðstoð rigningar og kulda hafi komið Húnavökunni að mestu fyrir kattarnef. Húnavökuhelgin var versta helgi sumarsins því miður og setti veðrið þar stórt strik í reikninginn. Bærinn nánast ekkert skreyttur lítið við að vera utandyra, færri gestir í bænum  og margur heimamaðurinn fór varla út úr húsi. Vonandi verður bjartara yfir Húnavökunni næsta sumar.

Strax á sunnudaginn á Húnavökuhelginni var komið ágætis veður og dagarnir þar á eftir góðir. Þá var í gangi listaverkasýning á Kleifum, þar sem sýnd voru málverk eftir Hjálmar Stefánsson en margir Blönduósingar muna eftir Hjálmari. Sýningin var mjög vel sótt og ber að þakka þeim húsráðendum á Kleifum Áslaugu Thorlacius og Finni Arnari Arnarssyni þetta frábæra framtak en þetta er í þriðja sinn sem þau efna til sýninga í gömlu fjóshlöðunni á Kleifum. Ekki skemmdi svo fyrir að eitt kvöldið kom óvænt fram hljómsveitin GÓSS en hana skipa Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Óskar og Sigríður Thorlacius, en hún er systir Áslaugar og eiga þær ættir að rekja að Kleifum, dótturdætur Ingileifar og Kristins sem þar bjuggu á sínum tíma. Flutningi þeirra var vel tekið og mikið fagnað þegar Sigríður nefndi að aldrei væri að vita nema þetta yrði endurtekið að ári.

Bæjarbúar margir spyrja sig til hvers verið var að lækka aksturshraða á sumum götunum bæjarins ofan í 30 km/klst. Það tekur varla nokkur ökumaður tillit til þessa og gott ef aksturshraði í bænum hefur ekki aukist. Mýrarbrautin er eins og hraðbraut og sama má segja um Hólabrautina þar sem er mikil umferð gangandi og hjólandi vegfarenda. Ég veit ekki til þess að lögreglan sé nokkuð að skipta sér af þessum hraðakstri og hef ég spurt marga hvort þeir kannist við það. En auðvitað get ég ekkert fullyrt um það. Nú skora ég á það góða fólk sem situr í stjórn bæjarins að gera eitthvað í málinu. Fá lögreglu í lið með sér og leiðbeina bæði ökumönnum bifreiða og hjólreiðamönnum/börnum og reyna að koma í veg fyrir þennan háska akstur áður en slys verður.

Nú bíða haustlægðirnar í röðum eftir að herja á okkur hér á norðurslóðum. Þær eru sumar ansi hvassar á brún og best að fara að huga vel að garðhúsgögnum og öðru lauslegu utandyra. Ég má til með að láta fljóta hér með hugleiðingu sem ég rakst á í blaði fyrir skömmu:

“Trampólín eru sannkallaðir vorboðar hér á landi, eins og farfuglarnir. En það er með trampólín eins og farfuglana. Á haustin takast þau á loft og fljúga út í buskann. Minni trampólíneigenda virðist gloppóttara en góðu hófi gegnir því það virðist alltaf koma þeim jafn mikið á óvart að þau geta ekki flogið.”

Ég vona að ekkert trampólín fjúki út í veður vind og að haustið verði þrátt fyrir allt gott. Ég sendi svo út í netheiminn mínar allra bestu þakkir til RÚV fyrir tónleikana í sjónvarpinu föstudagskvöldið 4. sept. Þar sem haldið var upp á 70 ára afmæli sinfóníuhljómsveitarinnar og 90 ára afmæli RÚV. Þvílík veisla, þvílík snilld.

Kærar kveðjur, Nöldri.

Höf. Nöldri
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið