Þórdís og Tinna. Ljósm: felahun.is
Þórdís og Tinna. Ljósm: felahun.is
Fréttir | 15. september 2020 - kl. 13:56
Samningur um talmeinaþjónustu

Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu og Trappa ehf. undirrituðu nýverið tveggja ára samning sem hefur það að markmiði að efla talmeinaþjónustu í heimabyggð. Trappa mun nú sjá um greiningar og þjálfun barna í Austur-Húnavatnssýslu  en talmeinafræðingar munu koma reglulega til að sinna greiningum og sinna þjálfun í gegnum fjarskiptaforritið Kara Connect að mestu á skólatíma barna.

Á meðfylgjandi mynd er Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri Austur-Húnavatnssýslu og Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Tröppu við undirritun samningsins á Hilton Hóteli í Reykjavík.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga