Fréttir | 16. september 2020 - kl. 16:11
Tuttugu listamenn taka þátt í HIP Festival

Tuttugu listamenn koma fram á Alþjóðlegu brúðulistahátíðinni Hvammstangi International Puppet Festival sem haldin verður 9.-11. október næstkomandi. Á henni verða tólf sýningar með listamönnunum sem eru af níu þjóðernum. Handbendi brúðuleikhús hefur veg og vanda af hátíðinni og verða þar tónlistarviðburðir, listasýningar, fyrirlestrar og smiðjur fyrir börn.

Rætt er við Greta Clough, listrænan stjórnandi hátíðarinnar í Ríkisútvarpinu. Greta segir að það sé mikil áskorum að halda listahátíð á tímum heimsfaraldurs en brúðulistahátíðin er nú haldin í fyrsta sinn. „Þetta hefur samt gengið rosalega vel, listamennirnir eru mjög jákvæðir og afslappaðir gagnvart þessu,“ segir Greta.

Fram kemur að listamennirnir tuttugu þurfa að fara í sjö daga sóttkví á Hótel Laugarbakka áður en hátíðin byrjar. Greta segir að hátíðin uppfyll öll skilyrði sem núgildandi sóttvarnarreglur kveði á um og Hvammstangi hafi alla innviði sem hátíð sem þessi þarf. Hún áréttar að gripið verði til allra nauðsynlegra ráðstafana í samræmi við fyrirmæli almannavarnanna ef aðstæður í samfélaginu breytast.

Sjá nánar á vef Ríkisútvarpsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga