Kindur í íslenskri náttúru. Mynd: Aðsend
Kindur í íslenskri náttúru. Mynd: Aðsend
Fréttir | 21. september 2020 - kl. 10:47
Viðhorf bænda til ullarinnar

Nýlega lauk skoðanakönnun á vegum Textílmiðstöðvar Íslands um viðhorf bænda til ullarinnar. „Ýmis tækifæri liggja í notkun og meðhöndlun á ull, en við vildum vita meira um viðhorf bænda. Hver er áhuginn á úrvinnslu á ullinni? Má bæta ullina og þá hvernig? Hvað finnst bændum um ullarverðið? Fleiri spurningar vöknuðum,“ segir Jóhanna E. Pálmadóttir, verkefnastjóri hjá Textílmiðstöðinni.

Skoðanakönnunin var unnin í samstarfi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og send út sumarið 2020. Þýði könnunarinnar samanstóð af þeim sauðfjárbúum sem skráð eru í Landssamtök sauðfjárbænda, alls 1.080 býlum. Alls bárust svör frá 572 býlum eða 53% sauðfjárbúa.

„Niðurstöður eru afar áhugaverðar og sýna m.a. að stórt hlutfall svarenda hefur áhuga að fræðast meira um ull, meðferð ullar og einnig hvernig hægt er að auka verðmæti ullarinnar,“ segir Jóhanna og þakkar hún sauðfjárbændum fyrir þátttökuna. Hún hvetur alla áhugasama um ull og ullarvinnslu að kynna sér skýrsluna á heimasíðu Textílmiðstöðvarinnar.

Grein eftir Jóhönnu um könnunina birtast í Bændablaðinu á næstunni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga