Fréttir | 22. september 2020 - kl. 09:36
Opið hús í Nesi listamiðstöð

Opið hús verður í Nesi listamiðstöðinni að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á morgun, miðvikudaginn 23. september klukkan 16:30-18:30. Sex mánuðir eru liðnir síðan haldið var opið hús síðast í listamiðstöðinni. Listamennirnir sem þar dvelja bjóða gestum að koma og sjá verk sín en þeir eru Hannah Witner, Erin Strada, Andolie Marguerite, Shinae Kim Kor, Andra Watkins og Sophie Cousins.

Sóttvarnir verða í hávegum hafðar í listamiðstöðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga