Tilkynningar | 24. september 2020 - kl. 08:10
Áskorun til íbúa Húnavatnssýslu
Frá velunnurum

Við sem búum á þessu svæði höfum verslun sem hefur þjónað okkur ansi lengi.

Það er Kjörbúðin okkar.

Viljum við ekki örugglega hafa hana áfram? Hún sér okkur ekki bara fyrir nauðsynjavörum heldur skapar hún líka mörg störf.

Þegar ferðamaðurinn hverfur er ennþá nauðsynlegra að við sem búum á þessu svæði VERSLUM Í HEIMABYGGÐ.

Smærri bæjarfélög hafa verið að lenda í að vöruverð hækkar og verslunarnöfnum er breytt.

Og einnig störfum fækkað.

Skorum við því á íbúana að standa vörð um Kjörbúðina okkar á Blönduósi og versla í heimabyggð.

Velunnarar

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga