Fréttir | 26. september 2020 - kl. 11:29
Tveir eru nú í einangrun á Norðurlandi vestra vegna COVID-19 smits og þrír eru í sóttkví, samkvæmt nýjum upplýsingum á covid.is. Þar kemur fram að í gær hafi 38 kórónuveirusmit greinst innanlands, þar af 28 í einkennasýnatökum og 10 í sóttkvíar- og handahófsskimunum. Fimmtíu og þrjú prósent þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu eða 20 manns.
Alls eru nú 435 í einangrun, sem er fjölgun um 35 síðan í gær. Tveir liggja á sjúkrahúsi.
Tekin voru 2.930 sýni, þar af 1.205 einkennasýni hjá veiru- og sýklafræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu.
Sjá nánari upplýsingar á www.covid.is.