Fréttir | 29. september 2020 - kl. 11:01
Opið hús í Textílsmiðstöðinni

Listamenn september mánaðar í Textílmiðstöðinni halda opið hús miðvikudaginn 30. september, klukkan 14-18. Annika Andersen er vefari og  jurtarlitar bandið sitt. Renée Rudebrant saumar út, skrifar útsaumsbækur og heldur námskeið. Báðar koma frá Svíþjóð og hafa dvalið í mánuð á Blönduósi.

Annika verður með sín verk í bílskúrsgalleríi en Renée verður í vinnustofu Kvennaskólans á annarri hæð.

Allir eru innilega velkomin en minntir á að hafa með sér sóttvarnargrímur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga