Framkvæmdir á skólalóðinni. Ljósm: Stoð ehf. verkfræðistofa á Sauðárkróki
Framkvæmdir á skólalóðinni. Ljósm: Stoð ehf. verkfræðistofa á Sauðárkróki
Fréttir | 29. september 2020 - kl. 14:19
Malbikun og vinna á skólalóð Blönduskóla

Unnið hefur verið að frágangi skólalóðar Blönduskóla í haust og voru malbikaðir þar nýverið um 1.200 fermetrar og snjóbræðsla sett undir hluta af því svæði. Á næstu dögum verða malbikaðir um 250 fermetrar til viðbótar. Einnig verða jöfnuð grassvæði og gengið frá með túnþökum. Þá verða settar upp rólur með frágengnu yfirborði.

Mikið rask hefur fylgt þessum framkvæmdum enda verið að móta skólalóðina að kastalasvæðinu og að nýbyggingu skólans. Vegna lengri framkvæmdatíma á nýbyggingunni seinkaði framkvæmdum við lóðina en þær voru háðar því að verkataki væri farin af svæðinu með krana og byggingarefni.

Helstu verktakar hafa verið Ósverk ehf., N1 píparinn ehf., Malbikun Akureyrar ehf. auk fleiri aðila. Einnig hafa starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Blönduósbæjar komið að verkinu. Hönnun lóðar var unnin af Halldóri Jóhannssyni, landslagsarkitekt og hefur Verkfræðistofan Stoð ehf. sé um allar útsetningar og útfærslur í samvinnu við Tæknideild Blönduósbæjar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir ársins við skólalóðina kosti að minnsta kosti um 20 milljónir króna.

Einnig verður malbikuð hluti af gangstétt efst í Sunnubraut. Stefnt er að því að ljúka við gangstéttar á Sunnubraut á næsta ári. Aðrar malbikunarframkvæmdir á Blönduósi voru á vegum Ámundakinnar við Húnabraut 4 og Efstubraut 1.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga