Nýja verknámshúsið. Ljósm: blonduos.is
Nýja verknámshúsið. Ljósm: blonduos.is
Fréttir | 29. september 2020 - kl. 14:35
Verknámshús Blönduskóla rýkur upp

Mikill gangur hefur verið í byggingu verknámshúss við Blönduskóla í sumar. Byggingin er ein hæð og kjallari og tengist gamla skólanum. Á fyrstu hæð byggingarinnar verða kennslustofur fyrir list- og verkgreinar og í kjallaranum verður tæknirými og fleira. Á vef Blönduósbæjar segir að viðbyggingin sé kærkomin og mikið ánægjuefni að öll kennsla fari fram á sama stað en hingað til hafa list- og verkgreinar verið kenndar á Þverbraut 1 og í gamla Kvennaskólanum.

Húsið er uppsteypt með Lett-Taks þakeiningum á þaki og teiknað af Ágústi Hafsteinssyni, arkitekt hjá Form ráðgjöf ehf.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga