Fréttir | 12. október 2020 - kl. 13:03
Starf menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Blönduósbæjar laust til umsóknar

Blönduósbær auglýsir aftur nýtt starf menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa laust til umsóknar. Hann á að hafa faglega umsjón með öllu menningar-, íþrótta- og tómstundastarfi Blönduósbæjar í góðu samstarfi við hlutaðeigandi aðila, að því er segir í tilkynningu á vef Blönduósbæjar. Þar kemur fram að starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar verður lagt niður, enda muni umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins falla undir nýja starfi og eru áform uppi um að þróa nýtt frístundaheimili Blönduósbæjar.

Menningar-, íþrótta og tómstundafulltrúi verður einnig tengiliður við Landlæknisembættið og umsjónaraðili með verkefninu Heilsueflandi samfélag sem Blönduósbæjar hefur sótt um og hefst síðar á árinu. Hann heyrir beint undir sveitarstjóra og hefur starfsaðstöðu á skrifstofu Blönduósbæjar. Hann á að starfa í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og íþróttamiðstöðvar, ásamt því að vera tengiliður við félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu.

"Hér er um að ræða fjölbreytt og skemmtilegt tækifæri fyrir skapandi og skipulagðan einstakling til þess að taka þátt í að móta nýtt starf í vaxandi samfélagi," segir í tilkynningunni. Umsóknarfrestur er til og með 24. október næstkomandi.

Auglýsinguna um starfið má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga