Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:33 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:33 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:33 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:33 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:33 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:33 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í tilefni glæsilegs árangurs kvennaliðs Tindastóls í fótbolta í sumar er Feykir vikunnar undirlagður viðtölum og umfjöllunum um ævintýri litla félagsins á Króknum. Að sjálfsögðu er annað bráðgott efni líka og dugar ekki minna en 16 síður þessa vikuna.
Magnús Ásgeir Elíasson, bóndi á Stóru-Ásgeirsá í Húnaþingi setti á sig svuntuna og er matgæðingur vikunnar og býður upp á spennandi lambafille sem fyrsta rétt og svo kjötsúpu fyrir hálft hundrað manns. Í leiðara eru smá hugrenningar um nýja stjórnarskrá og gamla, fréttir á sínum stað og afþreying.
En aðalefni blaðsins er uppganga kvennaboltans í Skagafirði og þar má finna fjölmörg viðtöl við leikmenn, gamlar kempur, þjálfara fyrr og nú, stjórnarmenn og stuðningsfólk. Meðal þeirra eru þjálfararnir Guðni Þór Einarsson og Jón Stefán Jónsson, Rúnar Rúnarsson formaður deildarinnar, Valgerður Erlingsdóttir sem rifjar upp fyrstu ár kvennaboltans á Króknum, Svava Rún Ingimarsdóttir sú leikjahæsta, Vigdís Edda Friðriksdóttir Stólastúlka í toppliði Breiðabliks, Jackie Altschuld sem ætlar að koma aftur á Krókinn, Bryndís Rut fyrirliði og Hrafnhildur Björnsdóttir sem verið hefur lykilmaður úr nágrannabænum Blönduósi og Laufey Harpa varnajaxl.
Þá segir Guðjón Örn Jóhannsson, Gaui, frá því hvernig grunnurinn var lagður að þessum frábæra árangri stúlknanna og Sunna Björk Atladóttir fyrrverandi fyrirliði lýsir sinni hlið.
Fyrsta fótboltastelpan á Króknum, Vanda Sigurgeirsdóttir, er tekin tali en hún hefur afrekar margt á knattspyrnuvellinum sem og í þjálfun og segist hún afskaplega stolt af sínu liði af Króknum.
Inn á milli má svo finna kveðjur frá ýmsu góðu fólki alls staðar af jarðarkringlunni og ekki síst hamingjuóskir frá fyrirtækjum og félagasamtökum á svæðinu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |