Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 16. október 2020 - kl. 11:48
Leita að hitaveituleka með drónum

Á vef Blönduósbæjar segir frá því að á komandi vikum munu starfsmenn frá umhverfisverkfræðistofunni ReSource International gera lekaleit á hitaveitu innan Blönduóss fyrir hönd RARIK. Lekaleitin verður gerð með ómönnuðum loftförum, eða drónum, þar sem teknar verða hitamyndir úr +50 metra hæð af bænum vegna mögulegra leka á hitaveitulögnum. Gögnin nýtast RARIK til að stöðva núverandi leka ásamt því að varpa ljósi á mögulegar viðhaldsþarfir, að því er segir á vefnum.

Áætlað er að lekaleitin taki tvo daga og myndirnar eru teknar með hitamyndavél og úr þó nokkurri hæð svo ekki er hægt að greina neina persónugreinanlega hluti á þeim. Lekaleitin er áætluð á komandi vikum þegar veður leyfir, þegar vindur er hægur og engin úrkoma er í spákortum.

Fram kemur á vef Blönduósbæjar að ReSource International muni leitast eftir því að framkvæma verkið með öryggi og hag íbúa að leiðarljósi og þakkar fyrirfram sýndan skilning og þolinmæði.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga