Fréttir | 19. október 2020 - kl. 16:18
Fyrirkomulag rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra

Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra á komandi veiðitímabili hefur verið ákveðið og birt á vef sveitarfélagsins. Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra. Leyfin eru tvennskonar og gefin út á tvö svæði.

Kort af svæðunum má sjá á vef Húnaþings vestra.

Þess er vænst að veiðimenn virði fyrirkomulagið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði. Verð fyrir hvert leyfi er 9.000 krónur á dag.

Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2020:

Svæðin eru:

  1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi  og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnatungu. Sjá kort hér
  2. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru. Sjá kort hér. 

Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2020 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag en 5 byssur á svæði 2 og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Rjúpnaveiði í Víðidal

Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal verður eins og undanfarin haust takmörkuð.   

  • Frá 1.-8. nóvember eru seld leyfi í eignarland Húnaþings vestra í Gafli sunnan Gaflsgjár, og Lækjarkots, 4 byssur á dag.
  • Frá 9.-30. nóvember eru seld leyfi í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða þrjár byssur á dag, Gafls og Lækjarkots fjórar byssur á dag alls 7 byssur á dag.

Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag. Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is. Allar upplýsingar um rjúpnaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga