Á Kjalvegi við Blöndulón. Ljósm: Hallbjörn Hallbjörnsson
Á Kjalvegi við Blöndulón. Ljósm: Hallbjörn Hallbjörnsson
Fréttir | 22. október 2020 - kl. 13:26
Ástand Kjalvegar veldur áhyggjum

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hefur miklar áhyggjur af ástandi Kjalvegar og skorar hún á Vegagerðina að ráðast í undirbúningsaðgerðir til að bæta ástand vegarins. Í bókun sveitarstjórnar frá fundi hennar í gær segir að vegurinn sé á stórum köflum niðurgrafinn sem geri það að verkum að vatn renni eftir veginum sem hafi þær afleiðingar að allt efni sé farið úr honum.

Sveitarstjórn telur að ef Kjalvegur verði byggður upp komi það í veg fyrir utanvegaakstur og hættu á slysum. Leggur hún áherslu á að Kjalvegur verði settur á 1. tímabil samgönguáætlunar. Sveitarstjórnin hvetur samgöngunefnd Alþingis og Vegagerðina til að

hefja undirbúningsvinnu við endurbætur á Kjalvegi sem meðal annars. felst í mati á umhverfisáhrifum samanber niðurstöðu Skipulagsstofnunar frá 19. desember í fyrra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga