Fréttir | 23. október 2020 - kl. 11:30
Ámundakinn er Framúrskarandi fyrirtæki 2020

Ámundakinn á Blönduósi er í úrvalshópi fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á framúrskarandi fyrirtækjum árið 2020. Í ár skipa 842 fyrirtæki listann en hann byggist á rekstri og fjárhagsstöðu fyrirtækjanna á árinu 2019. Þetta er ellefta árið í röð sem Creditinfo tekur saman listann en fyrirtækin þurfa að uppfylla fjölmörg skilyrði til að fá að bera þennan eftirsótta titil. Ámundakinn hefur undanfarin sjö ár verið á listanum.

Rekstur sem byggir á traustum stoðum
Fyrirtækin sem komast í úrvalshóp Creditinfo sýna stöðugleika í rekstri og skapa þannig verðmæti og störf. Þau standa á traustum stoðum og eru því ekki líkleg til að valda samfélaginu kostnaði. Til að komast í hópinn þarf að uppfylla ýmis skilyrði, m.a. að hafa skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár og að rekstrarhagnaður hafi verið jákvæður þrjú ár í röð. Þá þarf eiginfjárhlutfallið að hafa verið 20% eða meira og eignir 100 milljónir eða meira að meðaltali þrjú rekstrarár í röð. Aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi komast í úrvalshóp framúrskarandi fyrirtækja 2020.

Annað fyrirtæki sem kemst á lista Creditinfo í Húnaþingi er Sláturhús KVH á Hvammstanga. Tólf önnur fyrirtæki á Norðurlandi vestra eru á listanum en það eru: Kaupfélag Skagfirðinga, FISK-Seafood, Steinull, Vörumiðlun, Vinnuvélar Símonar, Tengill, Ó.K. Gámaþjónusta-sorphirða, Norðurtak, Steypustöð Skagafjarðar, Friðrik Jónsson, Spíra og Raðhús, öll staðsett á Sauðárkróki.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga