Tilkynningar | 23. október 2020 - kl. 21:51
Fjarnámsúrræði NTV-skólans
Frá Stéttarfélaginu Samstöðu

Námskeið sem NTV-skólinn í samstarfi við starfsmenntasjóði Lands-Sveitar-Ríkis og Sjómennt munu bjóða félagsmönnum Stéttarfélagsins Samstöðu upp á sex námskeið í nóvember og desember, þeim að kostnaðarlausu. 

Nánari lýsingu á námskeiðum má finna hér með því að smella á slóðirnar hér fyrir neðan, en hafa skal í huga að fjarnámskeiðin eru yfirleitt aðeins einfaldari en staðarnámskeiðin sem lýsingarnar eiga við.

Stefnt er að því að námskeiðin hefjist í fyrstu viku nóvember og klárist tímanlega fyrir jólin.

Bókhald Grunnur                                8 vikur 
Digital marketing                                7 vikur 
Frá hugmynd að eigin rekstri               4 vikur 
App og vefhönnun                              6 vikur 
Vefsíðugerð í WordPress                     4 vikur 
Skrifstofu og tölvufærni                     6 vikur 

Þátttakendur skrá sig á námskeið á slóðinni http://www.ntv.is/is/namskeid/nam-i-bodi-stettarfelags.

Áður en námskeið hefst þarf stéttarfélag að staðfesta að þátttakendur séu félagsmenn með réttindi hjá starfsmenntasjóði.

Reikningur fyrir námskeiðin verður að fullu greiddur af starfsmenntasjóðum.

Nánari upplýsingar veitir Stefanía s:4524932,  netf: stefania@samstada.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga