Tilkynningar | 26. október 2020 - kl. 10:07
Okkur vantar garn dokkur eða hespur

Ágætu Húnvetningar.

Félagsstarfið að Þverbraut 1 leitar til ykkar um hvort þið eigið garn dokkur eða hespur sem má vinda upp. Garn dokkur eru undnar upp en við endur vindum þær mega líka vera hnyklar (ekki Lopi). Það er yndislega kona hún Herdís Ellertsdóttir sem styttir sér stundir við að vinda upp bæði heima og í starfinu hjá okkur.

Nú er rétti tíminn til að taka til í garninu sýnu fyrir jólin og láta fara minna fyrir því. Endilega merkja ykkur pokana eða kassana. Hún passar vel upp á alla miða sem fylgja dokkunum. Þetta er að skapa henni mikla gleði að fá að eiga við þetta margt smátt gerir eitt stórt.

Senda má mér póst á sisab@blonduos.is hringja í síma 455 4785 eða 452 4553.

Ég sæki á 540 svæðinu og skila til baka til ykkar ef þið óskið.

Koma með til mín á Urðarbraut 17. eða Þverbraut 1. mán. - fimmtud. frá kl: 13:00 - 17:00.

Bestu kveðjur til ykkar.

Félags og tómstundastarfið/ Þverbraut 1.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga