Fréttir | 28. október 2020 - kl. 14:54
Höldum hrekkjavöku einungis heima

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vekur athygli á því að á laugardaginn er hrekkjavaka sem sífellt hefur notið meiri vinsælda hér á landi og víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús með „grikk eða gott". Að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 hvetja almannavarnir foreldra og forráðamenn að halda upp á hrekkjavökuna með börnum sínum með öðru sniði í ár. Höldum hrekkjavöku einungis heima öryggisins vegna.

Veiran getur svo auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletirnir margir þegar gengið er hús úr húsi til að fá sælgæti. Áhættan við að fá smit er afar mikil eins og staðan er núna.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér hugmyndir á hrekkjavöku frá Heimili og skóli - Landssamtök foreldra.

"Finnum aðrar og öruggar leiðir til að halda upp á hrekkjavökuna enda margt hægt að gera eins og að klæða sig í búninga og skreyta innandyra sem utan. Hægt er að fara í ratleik eða fjársjóðsleit utandyra án þess að banka upp á hjá nágrönnum. Við erum öll almannavarnir, höldum áfram að vinna að því saman að fækka smitum og komast á betri stað en við erum í dag. Við getum gert þetta saman og samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin," segir í tilkynningu frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga