Hvítserkur. Mynd: visithunathing.is
Hvítserkur. Mynd: visithunathing.is
Fréttir | 30. október 2020 - kl. 09:42
Ferðamenn taldir við Hvítserk

Um miðjan þennan mánuð var settur upp ferðamannateljari við Hvítserk. Eftirspurn eftir rauntímagögnum um fjölda ferðamanna og dreifingu þeirra um landið hefur aukist töluvert á undanförnum árum. Því réðust Ferðamálastofa og Umhverfisstofnun í það samstarfsverkefni að fjölga áfangastöðum ferðamanna sem talið er á.

Gögnin sem verða til munu nýtast við að meta álag ferðamanna á náttúru og innviði, ásamt því að meta dreifingu ferðamanna í rauntíma. Áður en verkefnið hófst var talið á sex áfangastöðum en þegar því lýkur á vormánuðum næsta árs verður talið 24 áfangastöðum.

Fyrsta áfanga verkefnisins lauk nú um miðjan október með uppsetningu á teljurum við Hvítserk, Dynjanda, Súgandisey, Saxhól, Hraunfossum og Seltúni. Talning eru byrjuð að skila sér af fjórum áfangastöðum og bætast Dynjandi og Súgandisey við á næstu dögum.

Annar áfangi verkefnisins hefst í byrjun nóvember og verða þá teljarar settir upp við Dettifoss, Stuðlagil, Jökulsárlón, Skaftafell, Fjaðrárgljúfur, Reynisfjöru og í Reykjadal.

Þriðja áfanga verkefnisins er svo áætlað að ljúki á vormánuðum næsta árs en verða þá settir upp teljarar við Fimmvörðuháls, Laugveginn, Látrabjarg og Hveravelli.

Sagt er frá þessu á vef Ferðamálastofu og þar má lista yfir staðina 24 á korti.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga