Tilkynningar | 30. október 2020 - kl. 11:39
Ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga fellur niður 3. nóvember n.k.
Í varúðarskyni vegna Covid-19 faraldurs sem herjað hefur á landið fellur niður fyrirhuguð ferð fulltrúa sýslumanns til Hvammstanga þriðjudaginn 3. nóvember nk. Þjónustuþegum er bent á að beina erindum sínum rafrænt á netfang embættisins, nordurlandvestra@syslumenn.is eða hafa samband við aðalskrifstofu embættisins í síma 458-2500. Reynt verður eftir fremsta megni að leysa úr þeim erindum sem berast með þessum hætti.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
F.h. sýslumannsins á Norðurlandi vestra
Birna Ágústsdóttir, sýslumannsfulltrúi