Páll Pétursson. Mynd: Alþingi.
Páll Pétursson. Mynd: Alþingi.
FrĂ©ttir | 24. nóvember 2020 - kl. 10:05
Páll Pétursson fyrrverandi ráðherra er látinn

Páll Pétursson á Höllustöðum, bóndi, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, lést á Landspítalanum í gær 23. nóvember, 83 ára að aldri. Hann var fæddur á Höllustöðum í Blöndudal 17. mars 1937. Foreldrar hans voru Pétur Pétursson, bóndi á Höllustöðum í Blöndudal, og Hulda Pálsdóttir húsmóðir. Hann var elstur fjögurra systkina.

Páll lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1957 og var bóndi á Höllustöðum frá útskrift. Hann var alþingismaður Norðurlands vestra árin 1974 til 2003 fyrir Framsóknarflokkinn og félagsmálaráðherra árin 1995-2003. Hann var einnig formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1980-1994. Páll gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína, vann að hagsmunum hestamanna, var formaður Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og formaður undirbúningsnefndar um stofnun Textílseturs Íslands á Blönduósi. Alla tíð sýslaði hann við búskap á Höllustöðum ásamt fjölskyldu sinni.

Fyrri eiginkona Páls var Helga Ólafsdóttir húsmóðir. Hún lést árið 1988. Börn þeirra eru Kristín, Ólafur Pétur og Páll Gunnar. Eftirlifandi eiginkona Páls er Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, alþingismaður og umhverfisráðherra. Þau giftu sig í ágúst 1990.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga