Staðan 25.11.2020. Mynd frá AST á Norðurlandi vestra
Staðan 25.11.2020. Mynd frá AST á Norðurlandi vestra
Fréttir | 25. nóvember 2020 - kl. 11:42
Enginn í einangrun eða sóttkví

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur uppfært skráningu yfir þá sem eru í einangrun og sóttkví vegna kórónuveirufarsóttarinnar á Norðurlandi vestra. Taflan er sérlega ánægjuleg að þessu sinni og sýnir að enginn er í einangrun eða sóttkví. Aðgerðastjórnin vonar að svo verði áfram. „Til þess að svo verði verðum við öll að halda vöku okkar og huga áfram að okkar einstaklingsbundnu sóttvörnum, því að almannavarnir í þessu tilfelli byrja heima,“ segir í tilkynningu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga