Fréttir | 26. nóvember 2020 - kl. 09:24
Haustdagur ferðaþjónustunnar heppnaðist vel

Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra, sem fram fór á netinu 17. nóvember síðastliðinn, heppnaðist vel. Kjörorð hans var „Þegar hjólin snúast á ný“ og var þá verið að skírskota til þess sem mest skiptir máli þegar ferðaþjónusta fer að ná vopnum sínum á ný eftir þunga mánuði.  

„Við vorum ákaflega heppin að fá góðan hóp fagfólks úr ferðaþjónustuumhverfinu og tengdum greinum til að svara spurningum um: sjálfbærni, innanlandsmarkað, rekstrarumhverfi fyrirtækja, fjárfestingar, stafræna þróun og aðkomu stjórnvalda í sex snaggaralegum viðtölum. Þar kom ýmislegt fróðlegt í ljós og ástæða til að hvetja þá , sem misstu af viðburðinum að kíkja á hann hér á síðunni,“ segir í frétt á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Þar segir einnig: „Það er okkur líka mikil ánægja að geta látið verkin tala í kjölfar viðburðarins og bjóða á næstunni upp á annars vegar námskeið í stafrænni þróun, sem fólk getur kynnt sér hér og hins vegar upp á nýja og betrumbætta útgáfu af RATSJÁ fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu og tengdum greinum, í samvinnu við Íslenska ferðaklasann, RATA ráðgjöf og kollega okkar í öðrum atvinnuþróunarfélögum á landsbyggðinni. Hér bendum við á kynningarfund, sem haldinn verður á netinu fimmtudaginn  26. nóvember klukkan 11.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga